Innfelld ljós eru stílhrein og látlaus lausn sem fellur vel inn í rýmið og gefur hreint og nútímalegt yfirbragð. Þau henta vel sem almenn lýsing í eldhúsum, stofum, göngum, baðherbergjum og fleiri rýmum þar sem óskað er eftir góðri birtu án þess að ljósin taki mikið pláss.
Með réttri staðsetningu er hægt að skapa jafna og þægilega lýsingu eða draga fram ákveðin svæði og áherslur. Hjá Lumex finnur þú innfelld ljós í fjölbreyttum útfærslum fyrir mismunandi rými og þarfir.