Flos
Designer:
Couldn't load pickup availability
Einstök ítölsk hönnun með fallegum, óvæntum smáatriðum!
CAN CAN frá ítalska hönnunarfyrirtækinu Flos er glæsilegt hangandi ljós, hannað af Marcel Wanders.
Við fyrstu sýn er ljósið einfalt og stílhreint, en undir hvítum skerminum leynist einstaklega fallegt skrautmynstur sem gefur því sérstakan karakter.
Samspil einfaldra forma og rómantískra smáatriða gerir CAN CAN að tímalausum hönnunargrip sem vekur athygli án þess að vera yfirþyrmandi.
Ljósið kemur einstaklega vel út yfir borðstofuborði, eldhúseyju eða í stofu þar sem falleg hönnun fær að njóta sín.
Framleiðandi: Flos, ÍtalíaHönnuður: Marcel WandersLitur: Hvítur / glærStærð: Ø 34,7 × H 36 cmPerustæði: E27