Dabliu Globe er glæsilegt og nútímalegt hangandi ljós, hannað af Carlo Colombo fyrir ítalska ljósaframleiðandann Nemo Lighting.
Opalglerið dreifir birtunni mjúklega og jafnt og skapar hlýlega og notalega stemningu. Innbyggð LED-tækni tryggir orkusparandi lýsingu og hægt er að dimma ljósið eftir þörfum.