TITE 3 frá Foscarini er glæsilegt hangandi ljós, hannað af Marc Sadler. Einstök hönnun ljóssins sameinar glertrefjar og svarta koltrefjaþræði sem mynda fallega röndótta áferð og gefa ljósinu létt og fágað yfirbragð.
Þegar ljósið er kveikt lifnar áferðin við og skapar fallegt samspil ljóss og skugga.
Hönnunin hlaut hin virtu Compasso d'Oro hönnunarverðlaun árið 2001 og er sannkallaður ítalskur hönnunargripur.
Hönnuður: Marc Sadler Litur: Svartur Stærð: Ø 19 × H 28 cm
ATH! Vörum á afslætti er hvorki hægt að skila né skipta.